16 verðlaun til Skagfirðinga á Silfurleikum

Frjálsíþróttadeild ÍR hélt sína árlegu Silfurleika ÍR í Laugardalshöllinni í Reykjavík í gær, laugardaginn 17. nóvember. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls kepptu 13 Skagfirðingar á leikunum og unnu þeir alls til 16 verðlauna.  

Þá sigraði Jóhann Björn Sigurbjörnsson í 60m hlaupi í flokki 16-17 ára pilta. Auk þess unnu Skagfirðingar til 12 silfurverðlauna og 3 bronsverðlauna á mótinu. „Aðrir keppendur UMSS stóðu sig líka með sóma og voru framarlega í sínum greinum,“ segir á heimasíðu Tindastóls.

Verðlaunahafar UMSS:

  • Jóhann Björn Sigurbjörnsson (16-17):  1. sæti í 60m og 2. sæti í 200m hlaupi.
  • Fríða Ísabel Friðriksdóttir (14):  2. sæti í 60m, 200m, 60m grindahlaupi og þrístökki.
  • Ragna Vigdís Vésteinsdóttir (15):  2. sæti í 60m, 60m grindahlaupi og hástökki.
  • Ari Óskar Víkingsson (11):  2. sæti í 60m hlaupi.
  • Berglind Gunnarsdóttir (11):  2. sæti í kúluvarpi.
  • Sæþór Már Hinriksson (12):  2. sæti í þrístökki.
  • Vala Rún Stefánsdóttir (13):  2. sæti í kúluvarpi.
  • Hrafnhildur Gunnarsdóttir (14):  3. sæti í 60m grindahlaupi og kúluvarpi.
  • Elínborg Margrét Sigfúsdóttir (13):  3. sæti í 600m hlaupi.

Á heimasíðunni segir að metþátttaka var á mótinu að þessu sinni, skráðir keppendur voru 666 talsins og í mörgum greinum voru keppendur á bilinu 40-60 talsins.

 

Fleiri fréttir