Hlynur Freyr tekur við Stólastúlkum í körfunni
Í tilkynningu sem stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls sendi frá sér í gærkvöldi kemur fram að ákveðið hefur verið að gera breytingar á þjálfarateymi kvennaliðs félagsins. Hlynur Freyr Einarsson, sem hefur verið í hlutverki aðstoðarþjálfara, mun taka við sem aðalþjálfari liðsins en Israel Martin kveður.
„Hlynur hefur til þessa verið aðstoðarþjálfari og þekkir hópinn vel. Hann hefur sýnt yfirvegun, metnað og einstaka vinnusemi, og stígur nú inn í nýtt og stærra hlutverk. Við bjóðum Hlyn hjartanlega velkominn til starfa í nýju hlutverki og hlökkum mikið til að sjá hann leiða liðið áfram.
Um leið kveður Israel Martin kvennaliðið og stjórnin færir honum sitt allra besta þakklæti fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag til liðsins. Viðskilnaðurinn er gerður í mikilli vináttu og af fullri virðingu.
Í kvennaliðinu er fullt af dýrmætri reynslu og vinnusemi, og ungir og efnilegir leikmenn að koma upp, sem gefur okkur fulla ástæðu til að horfa björtum augum fram á veginn.
Nú fylkjum við liði, stöndum þétt saman og byggjum áfram upp öflugt og skemmtilegt kvennakörfuboltalið hjá Tindastóli,“ segir í yfirlýsingunni.
Þess má geta, ef fólk þekkir ekki til Hlyns, að hann er Króksari, sonur Einars Gíslason (Antons) og Helgu Dóru Lúðvíksdóttur en Hlynur er trúlofaður Bríönnu Berglindi John og ekki er langt síðan þau eignuðust lita dömu.
