161 nemandi brautskráðist frá FNV í gær
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni
29.05.2025
kl. 10.31

Nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sem viðstaddir voru brautskráninguna ásamt Ingileif, Kela og Kristjáni Bjarna sem öll láta af störfum að skólaári loknu. MYND: HINIR SÖMU
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið við hátiðlega athöfn miðvikudaginn 28. maí. Frá skólanum brautskráðust 161 nemandi af öllum brautum skólans. Ingileif Oddsdóttir, skólameistari, og Þorkell V. Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari, stýrðu athöfninni. Þau sérstöku tímamót verða við skólann að loknu þessu skólaári að þrír stjórnenda skólans; Ingileif skólameistari, Keli aðstoðarskólameistari og Kristján Bjarni Halldórsson áfangastjóri, láta af störfum.