9000 bollur í Sauðárkróksbakaríi
Á Íslandi hefur tíðkast í yfir hundrað ár að borða bollur á þessum degi þó mun það hafa þekkst eitthvað áður og á WikiPedia segir að í matreiðslubók Þ.A.N. Jónsdóttur frá 1858 er uppskrift að langaföstusnúðum, þ.e. bolludagsbollum. Áætlað hefur verið að íslenskir bakarar baki um eina milljón bolla fyrir bolludaginn en einnig eru margir sem baka bollur heima. Bollurnar eru nú oftast bornar fram með sultu og rjóma innan í og hattur bollunnar skreyttur með súkkulaðihulu eða glassúr en þó eru margar aðrar útgáfur til.
Í Sauðárkróksbakaríi eru útbúnar um 9000 bollur í heildina en eitthvað er um það að fólk kaupi bollur sem ekki er búið að setja rjóma og sultu í, segir Róbert Óttarsson bakarameistari. Mikið hefur verið að gera um helgina hjá starfsfólki Sauðárkróksbakarís um helgina eins og gefur að skilja enda borðar fólk bollur alla helgina. Róbert segir að allir hafi verið kallaðir til sem eru á launaskrá í fyrirtækinu til að vinna í dag enda mest að gera í dag.
Umræða fór af stað í fjölmiðlum með rjómann sem notaður er í bollurnar og segir Róbert að Sauðárkróksbakarí noti að sjálfsögðu ekta rjóma. Það eina sem hann kvartar yfir er að rjóminn kemur frá MS í eins lítra pakkningum sem gerir 300 stykki sem þarf að rífa upp. Þegar rjóminn var útbúinn í mjólkursamlagi KS, fékk hann rjómann í 10 lítra fötum sem auðsjálega er mun þægilegra.
Róbert var hress eftir erfiða helgi þegar blaðamaður heimsótti bakaríið í morgun og óskar hann öllum gleðilegs bolludags.