Á 12 ára afmæli 12.12.2012.

Afmælisbarn dagsins er hún Snædís Ósk Hjartardóttir sem býr í Hafnarfirði en hún er 12 ára í dag. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema hvað að daginn ber upp á 12.12.12. Snædís Ósk er Skagfirðingur að upplagi dóttir Hjördísar Jónsdóttur úr Brennihlíðinni (Jóns Sigurðssonar og Sigurbjargar Guðjónsdóttur) og Hjartar P. Jónssonar framkvæmdastjóra Iðnvéla.

Snædís Ósk er í viðtali á baksíðu Morgunblaðsins í dag og þar segist hún vera nokkuð spennt fyrir afmælinu og sér fyndist dagurinn flottur. Snædís Ósk hefur ekki mikinn tíma fyrir afmælisstúss í dag, segir hún því áhugamálið, fimleikarnir, gengur fyrir.

Til hamingju með afmælið Snædís Ósk!

Fleiri fréttir