Á góðum batavegi og ánægð með spjaldtölvuna

Hugur 5. bekkinga Varmahlíðarskóla hefur verið hjá bekkjarsystur sinni, Þórkötlu Þrastardóttur, frá því hún lenti í dráttarvélarslysi fyrir tæpum þrem vikum. Hún liggur nú á sjúkrahúsi í Reykjavík og er sem betur fer á góðum batavegi. 

„Bekkjarfélagar Þórkötlu hugsa hlýtt til hennar og langaði til þess að gera eitthvað fyrir hana og kom sú hugmynd upp að gefa henni spjaldtölvu til að stytta henni stundirnar á meðan hún er rúmföst,“ segir Ingibjörg Skarphéðinsdóttir, foreldri eins bekkjarfélaga Þórkötlu.

„Við viljum koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lögðu sitt af mörkum,“ segir Ingibjörg. Það voru fjölmargar ömmur og afar að stinga að krökkunum 1000-5000 kr. en einnig var sendur tölvupóstur á fyrirtæki í Skagafirði. „Við fengum mjög góð viðbrögð og það safnaðist fyrir spjaldtölvunni og rúmlega það,“ útskýrir Ingibjörg en alls söfnuðust 170 þúsund kr.

Nemendur í 5. bekk Varmahlíðarskóla. Hugur krakkana hefur verið hjá bekkjarsystur sinni sem er á batavegi á Barnaspítalanum í Reykjavík. Mynd: Varmahlidarskoli.

Hugmyndina segir Ingibjörg hafi kviknaði þegar Skarphéðinn, sonur hennar, vildi senda Þórkötlu DVD-disk svo henni leiddist ekki á meðan á spítaladvölinni stæði. Svo vildu sífellt fleiri vera með í gjöfinni og þannig vatt hugmyndin upp á sig.

Þórkötlu var svo færð spjaldtölvan, ásamt ýmsum fylgihlutum, á dögunum þar sem hún dvelur á Barnaspítalanum. „Það var rosalega gott að sjá hana – hún var ótrúlega hress miðað við það sem á undan er gengið,“ segir Ingibjörg og bætir við að Þórkatla hafi verið afar ánægð með gjöfina og mun hún koma að góðum notum, en hún þarf að dvelja áfram um stund undir læknishöndum á spítalanum.

Afgangspeningurinn var lagður inn á bankareikning sem stofnaður hefur verið á hennar nafni en þeir sem vilja styrkja Þórkötlu geta lagt inn á reikning: 0310-13-300238 kt. 220201-2790.

 

Fleiri fréttir