Ábendingar við fjölnota rými og útisvæði við Sundlaugina Hvammstanga

Á meðfylgjandi teikningu má sjá tillögur að ýmsum staðsetningum. Mynd af hunathing.is.
Á meðfylgjandi teikningu má sjá tillögur að ýmsum staðsetningum. Mynd af hunathing.is.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 14. janúar sl. að skipa starfshóp til að rýna teikningar fyrir fjölnota rými í austurenda Íþróttamiðstöðvarinnar á Hvammstanga sem m.a. er ætlað fyrir fólk með sértækar þarfir og aðstöðu fyrir keppnislið. Starfshópurinn skildi einnig koma með hugmyndir að framtíðarskipulagi útisvæðis við sundlaugina.

Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að helstu hugmyndirnar starfshópsins séu eftirfarandi:

Sérbúningsklefi og klefi fyrir fatlað fólk með aðstöðu fyrir aðstoðarmann (þar sem gufubað er núna). Hjólastólaaðgengi frá anddyri um gang að sunnanverðu.
Búningsaðstaða – Aðstaða sem t.d nýtist keppnisliðum.
Eimbað/ Gufubaðsklefi ásamt sturtu verði staðsett á útisvæði í norðaustur horni við heitapottinn.
Kaldur pottur verði niðurgrafinn á svipuðum stað og núverandi kaldur pottur er staðsettur.
Gæslurými aukið. Viðbygging til suðurs frá núverandi gæslurými til að bæta öryggi með betri ásýnd yfir svæðið fyrir starfsfólk.
Geymsluskúr fyrir áhöld og tæki verði komið fyrir á svæði undir rennibrautinni.
Sjúkraþjálfun – leitast verði við að finna aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara í húsnæði Íþróttamiðstöðvarinnar

Íbúum er gefin kostur á því að koma með ábendingar við tillögur starfshópsins í gegnum hnapp á forsíðu heimasíðunnar. Hægt er að senda inn ábendingar til og með 8. apríl nk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir