Aðeins ein sýning eftir - Tveir tvöfaldir

Leikfélag Sauðárkróks hefur nú sýnt 11 sýningar af farsanum Tveir tvöfaldir og er einungis ein sýning eftir sem fer fram fimmtudagskvöldið 24. maí kl. 20:30.

Það fyrirkomulag var haft á að miðasala fór fram í anddyri Bifrastar alla virka daga frá kl. 16-18 en núna í seinustu sýningarvikunni fer miðasala einungis fram í síma 849 9434 og í anddyri Bifrastar 30 mínútum fyrir sýningu (þegar húsið opnar),“ segir í fréttatilkynningu frá leikfélaginu.

Á heimasíðu Leikfélags Sauðárkróks má sjá nánar um starfsemi, leikara og starfsfólk.

Fleiri fréttir