Æfingaleikur við Skallagrím í kvöld
Meistaraflokkur karla í körfubolta tekur á móti úrvalsdeildarliði Skallagríms úr Borgarnesi í æfingaleik í kvöld kl. 18.15 í Síkinu. Frítt verður inn á leikinn. Á Tindastóll segir að bæði lið búi sig nú af kappi undir keppni í Domino's deildinni í vetur, en Skallarnir unnu sér þar keppnisrétt eftir úrslitakeppni 1. deildar í vor.
Báðir nýju erlendu leikmenn Tindastóls verða með í leiknum og tilvalið fyrir stuðningsmenn að sjá hvað þeir hafa fram að færa, segir ennfremur á heimasíðunni.