Aflétting lokunar svæðis á Hofsósi
Almannavarnir í Skagafirði, í samráði við snjóflóðavakt Veðurstofunnar, hafa ákveðið að aflétta lokun á svæðinu norðan göngubrúar í Kvosinni á Hofsósi. Lokunin var sett á í gær vegna snjóflóðahættu sem stafaði af miklum snjóhengjum í bökkunum ofan við hús á svæðinu.
Vernharð Guðnason hjá almannavarnarnefnd Skagafjarðar segir að ekki hafi þótt ástæða til að hafa svæðið lokað lengur en málið verði skoðað aftur ef asahláku geri. Þá munu heimamenn fylgjast með og gera aðvart ef aukin hætta þykir vera fyrir hendi.