Ágætur árangur yngri flokkanna

Þrír yngri flokkar körfuknattleiksdeildar Tindastóls tóku þátt í 2. umferð Íslandsmótsins um síðustu helgi. Þetta voru 9. flokkur stúlkna, 10. flokkur drengja og 7. flokkur drengja sem lék heima. Leik Tindastóls og Hauka í unglingaflokki var hins vegar frestað.

Samkvæmt heimasíðu Tindastóls spilaði 7. flokkur drengja hér heima í C-riðli. Strákarnir unnu D-riðilinn í 1. umferðinni. „Því miður liggja ekki fyrir nákvæm úrslit leikjanna, en þeir unnu Grindavík og töpuðu fyrir Skallagrími og Snæfelli,“ segir á heimasíðunni.

9. flokkur stúlkna spilaði í A-riðli í Kennaraháskólanum í Reykjavík. Stelpurnar mættu þar liðum Ármanns, Keflavíkur, Njarðvíkur og Hrunamanna.

Samkvæmt heimasíðunni var niðurstaða mótsins sú að Tindastóll sigraði 4 leiki af fjórum. „Spiluðum við vel mestmegnis af mótinu og er það vel. Varnarleikurinn var mun betri en í síðasta móti og þá sérstaklega er hjálparvörnin góð.  Sóknarleikurinn er líka að batna og á eftir að verða betri. Leikið verður í b-riðlinum næst og verður það mót 9.-10. febrúar á næsta ári,“ segir í pistli Karls Jónssonar þjálfara stúlknanna.

Nánar um framvindu leikjanna má lesa á heimasíðu Tindastóls en úrslitin voru eftirfarandi:

  • Tindastóll – Ármann               55-19
  • Tindastóll – Keflavík              26-58
  • Tindastóll – Njarðvík              31-32
  • Tindastóll – Hrunamenn        35-28
  • Tindastóll – Fjölnir-b              65-31
  • Tindastóll – FSu                     40-29
  • Tindastóll – Skallagrímur       44-41
  • Tindastóll – Valur                   62-38

 

 

Fleiri fréttir