Agent MoMo fór á kostum á Jólamóti Molduxa
Það var hart barist á körfuboltamóti sem haldið var annan dag jóla á Sauðárkróki og mörg skemmtileg tilþrif litu dagsins ljós í íþróttahúsinu. Flestir voru mættir til að uppskera sigur en voru misjafnlega vel undirbúnir. Þó má segja að liðið Agent MoMo hafi gengið hvað lengst í mannaráðningum því liðið skartaði bæði landsliðsmanni og bosman leikmanni ársins í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta.
Á YouTube er myndband sem sýnir hið magnaða lið og tilþrif sem fær hvern körfuboltaáhugamann til að gleðjast.
http://www.youtube.com/watch?v=BUL2z4HbUQc