Ágúst Guðmundsson gefur út bók um afmælisár Króksins 1971

Kápa og bak bókarinnar Á Króknum 1971. MYND: ÓAB
Kápa og bak bókarinnar Á Króknum 1971. MYND: ÓAB

Út er komin bókin Á Króknum 1971 en líkt og segir aftan á bókarkápu þá eru „...liðin 150 ár síðan byggð hófst við malarkrókinn á milli Gönguskarðsáróss og þar sem Sauðáin rann til sjávar í fjörunni árið 1871 ... Því fagnar Sauðárkrókur 150 ára byggðarafmæli sínu nú árið 2021 þegar þetta rit kemur út.“ Það var Ágúst Guðmundsson sögugrúskari á Króknum sem tók saman og gefur bókina út í nafni Skín við sólu ehf.

Bókin er 136 síður og skreytt fjölda ljósmynda frá árinu 1971 og raunar árunum í kring. Það var Nýprent sem sá um uppsetningu og myndvinnslu en Prentmiðlun hafði umsjón með prentun.

Það var margt í gangi árið 1971 á Króknum því auk þess sem haldið var upp á 100 ára afmæli byggðar var Landsmót UMFÍ haldið á Sauðárkróki, fyrsti togarinn kom í heimahöfn og Hljómsveit Geirmundar var stofnuð svo eitthvað sé nefnt. Í bókinni er farið yfir Sæluvikuna '71, málefni bæjarstjórnar og rifjað er upp hvaða búðir voru í bænum og hverjir réðu þar ríkjum. Bókin er sem fyrr segir skreytt fjölda mynda og margar þeirra dýrgripir í augum Króksara.

Á baksíðu segir jafnframt: „Óhætt er að segja að afmælisárið 1971 hafi verið sérlega merkilegt og viðburðaríkt í sögu bæjarins. Til dæmis bara í júlí mánuði var haldin glæsileg afmælishátíð og helgina á eftir fór fram Landsmót UMFÍ. Fjölmargir sóttu bæinn heim og gamlir Króksarar voru áberandi á afmælishátíðinni sem var bænum til sóma. Merkilegast verður þetta ár þó að teljast fyrir þau straumhvörf sem urðu í atvinnumálum bæjarins og bærinn byggir núverandi velsæld sína á, svo sem koma fyrsta skuttogarans.“

Bókin verður væntanlega boðin innan skamms til sölu í Skagfirðingabúð og Eymundsson auk þess sem nálagst má ritið hjá höfundi, ýmist með því að hafa samband í síma 862 5907 eða senda póst á ag@simnet.is en þetta verður nánar auglýst síðar. Stefnt er að útgáfuhófi á Kaffi Krók fimmtudaginn 15. júlí nk. kl. 16. Þar verður boðið upp á kaffi og kleinur, bókin kynnt og kannski lesnir stuttir kaflar.

Sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar styrkti útgáfu bókarinnar.

 

Fleiri fréttir