Áhafnir skipa FISK fordæma vinnubrögð núverandi stjórnvalda
Boðað var til fundar með áhöfnum skipa FISK Seafood í Verinu á Sauðárkróki í dag þar sem fyrirliggjandi frumvörp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld á starfsemi FISK voru kynnt. Á fundinn mættu ríflega 90 manns. Áhafnir Arnars HU 1, Málmeyjar SK 1, Klakks SK 5 og Örvars SK 2 sendu í kjölfarið frá sér eftirfarandi ályktun:
,,Fundurinn fordæmir vinnubrögð núverandi stjórnvalda í framgöngu sinni í breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Frumvörpin sem lögð hafa verið fram eru vanhugsuð og bein aðför að okkur sem erum starfsmenn stærri sjávarútvegsfyrirtækja svo og landsbyggðinni allri.
Jafnframt skora fundarmenn á stjórnvöld að draga þessi frumvörp til baka í óbreyttri mynd, og vinni að frumvarpi sem leiði til sem mestra sátta á meðal þegna landsins“