Algjörlega frábært Hrekkjavökuball – Lokadagur Skúnaskralls á morgun
Hrekkjavökuballið mikla fór fram á Hofsósi síðastliðið föstudagskvöld. Alls konar lið dreif að víða af Norðurlandi þó krakkar af Norðurlandi vestra væru í meirihluta. Ballið var liður í Skúnaskralli, barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, og þegar Feykir spurði Konráð Frey Sigurðsson hjá Félagsmiðstöðinni Friði í Skagafirði hvernig til hefði tekist á Hofsósi var svarið: „Algjörlega frábærlega!“
„Viðburðurinn sló í gegn og myndaðist alveg mögnuð stemning í Höfðaborg,“ sagði Konni. Feykir fékk nokkrar ansi skuggalegar myndir til birtingar frá Grunnskólanum austan Vatna og Félagsmiðstöðinni Friði og eru þær bæði frá undirbúningi viðburðarins, sem nemendur GaV höfðu veg og vanda af, og frá ballinu sjálfu sem Feykir sagði frá fyrir helgi.
Skúnaskralli lýkur á morgun en þá verður hellingur um að vera í Húnavatnssýslunum því Páll Óskar mætir og syngur og spjallar við grunnskólanemendur. Fyrst í kirkjunni á Skagaströnd, síðan í Félagsheimilinu á Blönduósi og strax eftir hádegi í Grunnskóla Húnaþiings vestra á Hvammstanga. Klukkan fimm verður síðan Hrekkjavökuball fyrir nemendur miðstigs á Norðurlandi vestra í Félagsheimilinu á Blönduósi en þar er reiknað með yfir 200 krökkum. Áfram Skúnaskrall!
