Allir undir 18 ára fá vinnu í sumar

Síðasti skráningardagur í Vinnuskóla Skagafjarðar er á morgun 15. maí en þar verður öllum yngri en 18 ára tryggð vinna í sumar. Vinnuskólinn er fyrir krakka  í 7. 8. 9. og 10. bekkjum og þeir sem hafa hugsað sér að sækja um vinnu í sumar en eru ekki búnir að því eru hvattir til að skrá sig á heimasíðu Svf. Skagafjarðar.

Þeir sem fæddir eru árin1994 og 1995 stendur til boða vinna í gegnum VIT- verkefni (atvinnuátak)  en þau skilyrði eru þó sett að viðkomandi hafi fengið neitun um aðra vinnu en markmið skólans er að enginn í þessum árgöngum verði atvinnulaus í sumar.

Tímalaun með orlofi fyrir nemendur vinnuskólans 2012 og verða eftirfarandi:

  • 7. bekkur kr. 361, heildartímar 40
  • 8. bekkur kr. 413, heildartímar 120
  • 9. bekkur kr. 491, heildartímar 180
  • 10. bekkur kr. 620, heildartímar 240

María Björk Ingvadóttir frístundastjóri sveitarfélagsins segir ekkert annað sveitarfélag á Íslandi hafa tekið jafn afgerandi forystu í atvinnumálum ungmenna  og Sveitarfélagið Skagafjörður.

-Ég kynnti þetta á fundi í Menntamálaráðuneytinu á föstudag og kom þar fram mikil ánægja og aðdáun á þessari stefnu. Það er  engum blöðum um það að fletta að það að tryggja öllum atvinnu er ein besta forvörn sem hugsast getur yfir sumarið, segir María Björk. Hún segir að margar fyrirspurnir hafi borist frá unglingum annarsstaðar að af landinu sem eiga hér ættingja eða vini og eru að óska eftir vinnu í Skagafirði. Mikil aðsókn er í Vinnuskólann og hefur hún aukist um meira en helming á síðustu 5 árum.

Fleiri fréttir