Allir velkomnir sem vilja fræðast um gamlar ljósmyndir

Uppbygging ljósmyndavefs á vegum Héraðsskjalasafns Skagfirðinga, Söguseturs íslenska hestsins og Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur staðið yfir í nokkuð langan tíma og hann mun verða formlega opnaður í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans í dag, miðvikudaginn 2. maí kl. 20:00. Unnar Ingvarsson héraðsskjalavörður Skagfirðinga sagði Feyki frá tilurð Ljósmyndavefsins, sérstöðu hans og innihaldi.

Við höfum lengi velt fyrir okkur birtingu á ljósmyndum á netinu svo almenningur eigi auðvelt með að skoða ljósmyndirnar sem við geymum. Á síðustu árum hefur verið settur aukinn kraftur í verkefnið, sérstaklega eftir að fjármagn fékkst til skönnunar og skráningar frá Menningarráði Norðurlands vestra, bæði til héraðsskjalasafnsins og Söguseturs íslenska hestsins og síðan verulegt fjármagn frá ríkinu til héraðsskjalasafnsins síðastliðin tvö ár. Þá hefur Sveitarfélagið stutt vel við verkefnið enda hefur það hentað ágætlega sem átaksverkefni fyrir fólk, sem hefur ekki haft atvinnu,“ segir Unnar.

Ljósmyndum hefur verið safnað skipulega á vegum Sögufélags Skagfirðinga og síðar Héraðsskjalasafns Skagfirðinga frá árinu 1937. Þannig segir Unnar að ýmislegt hafi safnast, og það sem er ekki síður mikilvægt, þá eru flestar myndirnar sem safnið varðveitir nafngreindar. „Ég held að það sé nánast einstakt hversu mikið hefur verið gert af því að reyna að nafngreina myndir og átta sig á myndefni,“ segir Unnar.

Hundruð þúsundir ljósmynda

Við vitum í raun ekki hversu mikið af ljósmyndum eru geymdar hjá þessum þremur aðilum. Þær eru að minnsta kosti 300.000 og verður aðeins hluti þeirra birtur á ljósmyndavefnum. Þar kemur margt til m.a. höfundarréttarmál. Vefurinn verður opnaður með um 15.000 myndum og fljótlega munu bætast við einhverjir tugir þúsunda,“ útskýrir Unnar.

Meðal þess sem nú verður birt eru myndasöfn sem varðveitt eru í héraðsskjalasafninu og ná yfir allt landið, ljósmyndir Páls Jónssonar, sem Örlygur Hálfdanarson bókaútgefandi gaf til safnsins og einstakt safn Brunos Schweizer sem afkomendur hans afhentu fyrir milligöngu Örlygs. Þá má nefna brot af myndasafni Kristjáns C. Magnússonar sem er að mestu frá Sauðárkróki og hluti af myndasafni Feykis sem Þórhallur Ásmundsson fyrrum ritstjóri gaf til safnsins.

Síðan er hluti af myndum fyrstu ljósmyndaranna á Sauðárkróki birtur, þannig að við gefum smá innlit inn í myndasafnið. Sveitarfélagið Skagafjörður birtir um 1200 myndir sem teknar hafa verið af ýmsum atburðum síðustu 10 ára og Sögusetrið birtir um 4000 myndir af íslenska hestinum og ýmsum viðburðum honum tengdum,“ segir Unnar.

Ljósmyndavefurinn verður öllum opinn og kostar ekkert að nota hann sem slíkan. Hins vegar segir Unnar notkun myndanna ekki heimil nema með leyfi viðkomandi aðila og greiða verður fyrir notkunina á myndunum.

Við vonum að fólk hafa ánægju af því að skoða myndirnar og geti nýtt sér þær með einum eða öðrum hætti. Við erum að stíga fyrstu skrefin. Smátt og smátt verður vefurinn viðameiri og auknar upplýsingar verða birtar um hverja mynd. Við vonum líka að fólk hjálpi okkur að greina myndir eða leiðrétta villur, en auðvitað er talsvert af villum í svona grunni, annað er óhjákvæmilegt,“ segir Unnar.

Sem fyrr segir verður vefurinn formlega tekinn í gagnið í kvöld kl. 20:00. „Þá verður dagskrá í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans þar sem við fáum góða gesti og ætlum að fjalla um gamlar myndir frá ýmsum hliðum. Þar eru allir velkomnir, sem vilja fræðast um gamlar ljósmyndir,“ segir Unnar í lokin.

Hægt verður að komast inn á vefinn með því að fara í gegn um heimasíðu héraðsskjalasafnins.

Fleiri fréttir