Alltaf gaman á Gærunni

Konungur skagfirsku sveiflunnar Geirmundur Valtýsson stígur á svið á tónlistarhátíðinni Gærunni sem hefst í dag en hann mun koma fram, ásamt hljómsveit sinni, annað kvöld. Feykir sendi Geirmundi nokkrar spurningar til að kanna stemninguna fyrir föstudagskvöldinu.

Hvenær var hljómsveitin stofnuð og hvað heita hljómsveitarmeðlimir?

Hljómsveitin Geirmundar stofnuð 1971 - mjög margir.

Hvernig myndir þú lýsa tónlist þinni?

Skagfirsk sveifla.

Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?

Margt sem verður ekki sagt.

Hvernig leggst í þig að spila á Gærunni 2012?

Alltaf gaman á Gærunni.

Hvað er á döfinni?

Allt lífið framundan.

Eitthvað að lokum?

Meira stuð.

http://www.youtube.com/watch?v=Zwh7zvnxn4g

 

Fleiri fréttir