Áramótabrenna á Sauðárkróki hefst klukkan 20:30
Vegna fjölda fyrirspurna vildi Haraldur Ingólfsson formaður Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveit á Sauðárkróki koma því á framfæri að kveikt verður í áramótabrennunni klukkan hálfníu í kvöld. Eins og áður hefur komið fram mun Indriði R. Grétarsson bogmaður freistast til að tendra eldinn með logandi ör.
Um klukkan 21:00 mun fara fram flugeldasýning á vegum Skagfirðingasveitar og lofar Haraldur góðri sýningu eins og undanfarin áramót.