Árni Bjarnason látinn

Árni Bjarnason er látinn 95 ára. MYND AF MBL.IS
Árni Bjarnason er látinn 95 ára. MYND AF MBL.IS

Árni Bjarnason, bóndi á Uppsölum í Blönduhlíð í Skagafirði, lést 20. nóvember á HSN á Sauðárkróki, 95 ára að aldri. Árni söng með Karlakórnum Heimi fram á tíræðisaldur og bar lengi þann ágæta titil að vera elsti maður í Heimi.

Árni fæddist á Uppsölum 8. nóvember 1931 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Bjarni Halldórsson og Sigurlaug Jónasdóttir. Árni tók gagnfræðapróf á Laugum í Þingeyjarsveit og lærði þar einnig smíðar. Hann tók ungur við búi foreldra sinna og sinnti búskap á Uppsölum þar til dóttir hans og tengdasonur tóku endanlega við árið 1998. Árni var lengi í hreppsnefnd Akrahrepps og hreppstjóri þar til það starf var lagt niður. Hann var fjallskilastjóri í 16 ár, var í sóknarnefnd Silfrastaðakirkju í rúm 20 ár og átti sæti í stjórn Kaupfélags Skagfirðinga í nokkur ár.

Árni hóf að syngja með Heimismönnum árið 1959 og var í kórnum í rúm 60 ár, þar af í stjórn hans í um 20 ár. Í viðtali í Morgunblaðinu árið 2021 sagðist Árni ekki vita hvort kórfélagar hefðu náð því að verða 90 ára á söngpöllunum. Taldi hann það þó líklegt, stofnfélagar Heimis hefðu sungið í áratugi, sumir fram í andlátið. Árni söng einnig í karlakórnum Feyki, Rökkurkórnum og kirkjukór Miklabæjar­sóknar. Þegar mest lét gátu söngæfingar orðið fimm sinnum í viku.

Árni var mikill hagleikssmiður, en á efri árum eyddi hann mörgum stundum í bílskúrnum á Uppsölum að smíða burstabæi og líkön af fleiri mannvirkjum. Voru þeir gripir orðnir um 150 talsins. Eftirminnilegast er stórt líkan af Silfrastaðakirkju, sem er áttstrend og ekki auðveld smíð. Árni náði því að sjá fyrirmyndina koma aftur heim á sinn grunn á dögunum, eftir að hafa verið í viðgerð í nokkur ár á Sauðárkróki. Þá tók Árni þátt í því verkefni sl. sumar, með Eyþóri syni sínum og fleirum, að fara með útileguborð sem hann hafði smíðað upp að vegamótunum að minnismerkinu á Kili, um frændur þeirra, Reynistaðarbræðurna Bjarna og Einar.

Eiginkona Árna var Sólveig Árnadóttir, f. 1925, d. 2015. Þau héldu stórt heimili þar sem oft var mikill gestagangur og margir áttu hjá þeim skjól. Börn þeirra eru Eyþór, f. 1954, Elín Sigurlaug, f. 1956, Drífa, f. 1959, og Anna Sólveig, f. 1962. Barnabörnin eru 12 talsins, langafabörnin 23 og eitt langalangafabarn.

Útför Árna fer fram frá Sauðárkrókskirkju 7. desember kl. 13.

- - - - -
Texti fenginn frá Morgunblaðinu

Fleiri fréttir