Fyrsta aðventuhelgin framundan

Örlítill ævintýraljómi settur á (með hjálp gervigreindar) um tíu ára gamla mynd af Kirkjutorginu á Króknum. MYND: ÓAB
Örlítill ævintýraljómi settur á (með hjálp gervigreindar) um tíu ára gamla mynd af Kirkjutorginu á Króknum. MYND: ÓAB

Fyrsti sunnudagur í aðventu er um helgina og á Sauðár-króki og Hvammstanga verða ljóst tendruð á jólatrjám sveitarfélaganna daginn áður eða laugardaginn 28. nóvember. Á Króknum má þó segja að fyrsti jólagjörn-ingurinn sé Friðarganga Árskóla þar sem ljós er látið berast upp Kirkjustíginn og endar svo með því að ljósin á krossinum á Nöfum eru tendruð. Friðargangar verður nú á föstudaginn og verður gengið frá Árskóla kl. 8:30.

Á laugardaginn verður Að-ventuhátíð á Sauðárkróki sem verður óvenju viðamikil og fjölbreytt. Að sjálfsögðu verður aðalmálið tendrun ljósa á jólatrénu og hefst sú dagskrá kl. 16:00 og verður með hefð-bundnu sniði. Grýla, Leppalúði og jólasveinar hafa tilkynnt um komu sína og sömuleiðis söng-dívan Regína Ósk þó hún komi reyndar úr allt öðru póstnúm-eri. Þá verða krakkar í Leikfélagi Sauðárkróks með atriði úr Bláa hnettinum og barna- og ungl-ingakór Skagafjarðar syngur jólalög.

Dagskráin er nánar auglýst í Sjónhorni og á vef Skagafjarð- ar en hún hefst kl. 9:30 með vasaljósagöngu með jólaívafi um Litla-skóg. Klukkan 10:30 hefst jólaföndur í bókasafninu og hið árlega Jólahlaðborð Rótarý-klúbbs Sauðárkróks hefst á hádegi. Það verður bíó í Bifröst kl. 13 þar sem fjölskyldumynd-in Galdraríkið Hexe verður sýnd. Þá verður jólastuð í sundlaugunum á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlíð yfir daginn.

Á sunnudag verður síðan Rökkurganga í Glaumbæ og ókeypis á safnið meðan á viðburðinum stendur eða á milli 15 og 17.

Ljós tendruð á Hvammstanga

Ljósin á trénu á Hvammstanga verða tendruð kl. 15:00 nú á laugardaginn og dansað verður í kringum tréð við undirleik og söng. „Við gerum ráð fyrir að jólasveinar mæti með góðgæti fyrir börnin og boðið verður upp á heita drykki. Stutt og notaleg stund fyrir yngstu kyn-slóðina og okkur hin sem eru heilluð af jólaundirbúningi og aðventustússi. Svo er fullt annað í boði þennan dag á Hvammstanga svo það er vel þess virði að taka daginn frá,“ tjáði Sigurður Þ. Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs hjá Húnaþingi vestra þegar Feykir leitaði upplýsinga.

Hvaðan kemur jólatréð á Hvammstanga? „Það vex þarna af sjálfsdáðum! Ekkert aðkeypt tré,“ sagði Siggi eldhress.

Í desember í A-Hún.

Þá hafði Feykir samband við Kristínu Ingibjörgu Lárusdótt-ur menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa í Húnabyggð. Hún sagði tendrun ljósa á jólatrénu á Blönduósi vera síðar á ferðinni en venjulega eða ekki fyrr en miðvikudaginn 9. des-ember. Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri á Skagaströnd sagði dagsetningu ekki liggja fyrir en taldi líklegt að ljós yrðu tendruð fyrstu helgina í desember. /óab

Fleiri fréttir