Arnór og Allan luku pílagrímagöngunni í gær
Í gær lauk pílagrímagöngu þeirra Langhyltinga í Skagafirði Sveins Allans Morthens og Arnórs Gunnarssonar en þeir hafa lagt að baki nokkra kílómetrana á Jakobsveginum svonefnda. Ferðin hófst þann 8. mars og á laugardaginn náðu þeir þeim áfanga að fá aflátsbréf í hendurnar sem staðfestir að þeir séu syndlausir til 18. júlí 2019 samkvæmt Fésbókarfærslu þeirra.
Jakobsvegur eða Vegur heilags Jakobs er ein þekktasta pílagrímaleið í Evrópu, endar í dómkirkjunni í Santiago de Compostela í héraðinu Galisíu á Spáni en hefst þar sem pílagrímurinn leggur af stað. Á Wikipedia segir að snemma hafi skapast helgisögn um tengsl Jakobs postula við norðvestur Spán og á 9. öld var álitið að líkamsleifar hans hefðu fundist þar sem nú er borgin Santiago de Compostela og er hún nefnd eftir Jakobi. Fljótlega fóru trúaðir víðsvegar að úr Evrópu að fara í bótgerðar og þakkargöngur til borgarinnar og varð hún þriðji mikilvægasti ákvörðunarstaður kristinna pílagríma á eftir Jerúsalem og Róm.
Þann 26. mars er færð inn skemmtileg færsla á Fésbókinni þar sem sagt er frá kraftaverki sem þeir urðu vitni að en fæst líklega ekki skráð í kirkjubækur.
„Allan hélt að hann hefði orðið vitni að kraftaverki i klaustrinu sem við gistum í sl. nótt, St- Klara i Carriaon de los Condes. Lykla-Pétur klaustursins rak mig í kirkju og barði í hnésbætur mínar uns ég gaf eftir og féll á skeljarnar. Stóð hann síðan yfir mér meðan ég hugsaði minn gang. Á eftir fór ég á safn um Jesúbarnið og voru líkneskin dýrðleg. Þar sem ég stóð fyrir framan líkneski af barninu i faðmi móðurinnar lagði sætan ilm af barnableyju fyrir vit mér og var augljóst að nú þurfti að skifta á barninu. Ég hrópaði upp og kallaði á Lykla-Pétur sem kom með harðneskjusvip að en þá sá ég um leið hvar Arnór laumaði sér út með skömmustusvip. Kraftaverkið er ekki viðurkennt. Annars er þetta stórkostlega gaman en varla á færi annarra en heljarmenna segir fyrrverandi fjallskilastjóri“.