Askasleikir kom sjötti
Þorsteinn Broddason heldur áfram að túlka jólasveinana og í dag kemur sá sjötti, Askasleikir.
Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
