Áskilur sér rétt að setja skilyrði fyrir lagningu Blöndulínu 3

Hin umdeilda Blöndulína 3 var til umræðu á 290. fundi sveitarstjórnar Svf. Skagafjarðar í gær en sveitarstjórn áskilur sér þann rétt að setja skilyrði fyrir lagningu Blöndulínu 3 hvað varðar leiðarval og framkvæmdakosti.

Samkvæmt fundargerð hefur sveitarstjórn kynnt sér frummatsskýrslu Landsnets. Þar eru tvær leiðir metnar fyrir línuna en hvorugar þeirra eru samkvæmt þeim ábendingum sem sveitarstjórn lagði til á fyrri stigum málsins og þykir sveitarstjórnarmönnum það vera miður.

Þá leggur sveitarstjórn ríka áherslu á að við undirbúning og vinnu að línulögninni sé tekið ríkt tillit til hagsmuna heimamanna. Jafnframt að skoðað verði hvort og þá með hvaða hætti hægt er að koma til móts við kröfur um línulögn í jörð að hluta til.

Lögð var fram eftirfarandi bókun:

„Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur kynnt sér frummatsskýrslu Landsnets vegna Blöndulínu 3.  Í skýrslunni eru tvær leiðir metnar  þó svo að á fyrri stigum máls hafi sveitarstjórn bent á aðra möguleika í leiðarvali og framkvæmdakosti, svo sem að leggja línu í jörð, í að minnsta hluta til, aðrar stauragerðir loftlína, frekari rökstuðning fyrir áætluðu spennustigi og fleiri þætti sem krefðust meiri umfjöllunar. Því miður eru þeir,  og aðrir kostir í leiðarvali  ekki metnir með fullnægjandi hætti í umræddri skýrslu.

Sveitarstjórn áréttar ennfremur að við undirbúning og vinnu að línulögninni sé tekið ríkt tillit til hagsmuna heimamanna og skoðað hvort og þá með hvaða hætti hægt er að koma til móts við kröfur um línulögn í jörð að hluta til og er í því vísað til þingskjals 748 frá 1. febrúar 2012 um skipun nefndar á vegum iðnaðar-  og umhverfisráðuneytisins sem móta á stefnu um lagningu raflína í jörð. Óráðlegt er að taka afstöðu til leiðarvals og málsins á meðan nefndin hefur ekki skilað niðurstöðu. Sveitarstjórn áskilur sér rétt til að setja skilyrði fyrir lagningu Blöndulínu 3 hvað varðar leiðarval, og framkvæmdakosti , þar með talið að raflína verði að hluta til lögð í jörð.“ 

Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með níu atkvæðum.

Um Blöndulínu 3 segir á heimasíðu Landsnets:

Landsnet undirbýr nú lagningu Blöndulínu 3, 220 kV háspennulínu milli Blöndustöðvar og Akureyrar. Tilgangur framkvæmdarinnar er að styrkja meginflutningskerfi raforku á Norðurlandi en jafnframt er hún fyrsti áfanginn í að auka flutningsgetu byggðalínuhringsins um landið.

Núverandi byggðalína mætir ekki lengur þeim kröfum sem gerðar eru til flutningskerfisins varðandi rafmagnsgæði og afhendingaröryggi. Umtalsverð aukning orkunotkunar er ekki möguleg nema með tilkomu Blöndulínu 3.

Unnið hefur verið að skipulagsmálum milli Blöndustöðvar og Akureyrar í góðu samstarfi við viðkomandi sveitarfélög. 

Fleiri fréttir