Ástarlög í tali og tónum sumardaginn fyrsta

Boðið verður upp á notalega kvöldstund í Miðgarði á morgun, sumardaginn fyrsta, en þar munu þær Ólöf, Kristín Halla og Jóhanna Marín flytja ástarlög í tali og tónum.

„Það er tilvalið að byrja sumarið á góðri kvöldstund í Menningarhúsi Skagfirðinga,“ segir Unnur Gottsveinsdóttir, rekstraaðili Miðgarðs en tónleikarnir verða haldnir á efri hæð Miðgarðs og hefjast kl. 21:00. Miðaverð er einungis 1.000 kr og barinn verður opinn fyrir þá sem vilja.

Fleiri fréttir