Atli Arnarson Íþróttamaður Tindastóls

Knattspyrnumaðurinn Atli Arnarson var valinn íþróttamaður Tindastóls í hófi sem var haldið 28. desember á Sauðárkróki.  Hver deild innan Tindastóls tilnefndi sinn fulltrúa í þetta kjör þar sem Atli varð hlutskarpastur.

Atli Arnarson sem er fæddur árið 1993 hefur verið lykilmaður í knattspyrnuliði Tindastóls á síðustu árum og er drengur góður jafnt innan vallar sem utan, segir á Tindastóll.is.

Tilnefnd til íþróttamanns Tindastóls. Sigrún Þóra fyrir sund, Anna Jóna móðir Maríu Finnbogadóttur skíði, Jóhann Björn frjálsar, Helgi Rafn körfubolti og Atli Arnarson fótbolti.

Fleiri fréttir