Atli Dagur fær góða umsögn frá doktor í tónlist

Atli Dagur á Músíktilraunum. Mynd: Músíktilraunir
Atli Dagur á Músíktilraunum. Mynd: Músíktilraunir

Undankvöld Músíktilrauna fóru fram í vikunni sem er að líða í fjórum hlutum, eitt kvöld í senn. Atli Dagur Stefánsson frá Sauðárkróki kom fram á þriðja kvöldinu einn síns liðs, en komst því miður ekki áfram í úrslitakvöldið. Engu að síður fékk hann góða umsögn frá Dr. Arnari Eggert Thoroddsen, doktor í tónlistarfræðum, en hann skrifaði í Morgunblaðið og á heimasíðu sína umsagnir um öll þau atriði sem komu fram á undankvöldum Músíktilrauna.

Umsögn Dr. Arnars er svo hljóðandi:
„Sauðkrækingurinn Atli kom einn fram með gítar og lykkjuvél („loopstation“). Fyrra lagið ámátleg Ed Sheeran-ballaða en gítarspil gott. Seinna lagið, hvar tónlykkjurnar fóru á fullt, var mjög flott og mikil stemning myndaðist í salnum. Það er meira en vert að fylgjast með pilti á næstu misserum.“

Atli Dagur er sonur þeirra Hrafnhildar Guðjónsdóttur og Stefáns Vagns Stefánssonar á Sauðárkróki. Á morgun, föstudaginn 28. maí munu hans fyrstu lög undir hans eigin nafni, „Atli“, koma út en áður hefur hann gefið út lög með Hauki Sindra Karlssyni undir heitinu „Azpect“.

/SMH

 

Fleiri fréttir