Átti alla diskana með Blink 182 / SIGFÚS ÓLAFUR

Sigfús Ólafur syngjandi á VSOT 2018. MYND: HJALTI ÁRNA
Sigfús Ólafur syngjandi á VSOT 2018. MYND: HJALTI ÁRNA

Sigfús Ólafur er maður nefndur og er Guðmundsson. Hann er af 1986 árgerð og býr í Túnahverfinu í Króknum en starfar sem tryggingasali hjá Vátryggingafélagi Íslands. „Ég er fæddur og uppalinn í Neskaupstað, þar sem lognið hlær svo dátt. Ég er sonur hjónanna Guðmundar H. Sigfússonar og Ásrúnar B. Sveinsdóttur. Ég er einn af þessu innfluttu í Skagafirði. Fór í skóla til Reykjavíkur og kynntist þar stúlku úr Skagafirði sem sannfærði mig um að þar væri gott að búa,“ segir Sigfús fjallbrattur.

Hann segist eiga mjög auðvelt með að læra á hljóðfæri, æfði lengi á trompet á yngri árum en hefur einnig lært á gítar og söng og það eru hans aðal hljóðfæri í dag. „Ég er einnig partýfær á píanó, bassa, trommur  og þríhorn,“ segir Sigfús og glottir en aðspurður um helstu afrek sín á tónlistarsviðinu segir hann: „Ætli það sé ekki þegar að hljómsveit sem ég var í á yngri árum náði lagi inn á Svona er sumarið 2006. Einnig hef ég tekið þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna og svo náði ég í 35 manna úrslit í þriðju seríu af íslenska Idolinu.“ Ekki slæmt.

Hvaða lag varstu að hlusta á? Ég var að enda við að hlusta á lagið Scars með James Bay

Uppáhalds tónlistartímabil? Ég á ekki neitt eitt uppáhalds tímabil heldur finnst samblanda af öllum tímabilum skemmtileg.

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Einföld tónlist með góðu grúvi, svona minna er betra fílingur í lögunum

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Það var ekkert rosalega mikið vera að hlusta á tónlist á mínu heimili svona í minningunni allavega. Ætli foreldrar mínir hafi ekki reynt að njóta þagnarinnar þegar að ég var ekki að æfa mig á trompet eða systir mín á þverflautu.

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Fyrsta platan sem ég man eftir að hafa keypt mér sjálfur var held ég Pottþétt 9. Þar var að finna hið geysivinsæla lag Vöðvastæltur með Landi og sonum sem heillaði mikið á þessum tíma.

Hvaða græjur varstu þá með? Ég var með Sony græjur með innbyggðum geislaspilara og segulbandstæki. Þær eru meira að segja ennþá í notkun heima hjá foreldrum mínum.

Hver var fyrsta lagið sem þú mannst eftir að hafa fílað í botn? Man eftir að þegar pabbi keypti fyrsta geislaspilarann okkar þá keypti hann geisladiskinn „Bandalög 5“. Þar var að finna lagið Ferð án enda með hljómsveitinni SúEllen. Það er fyrsta lag sem ég man eftir að hafa fílað alveg í botn.

Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Það er í raun ekkert eitt lag en það er ákveðið 80´s sánd sem ég gjörsamlega get ekki. Svona þungir synthar og léleg tölvuhljóð. Siggi Hlö er snillingur að finna þessi lög og spila í þættinum hjá sér

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Öll góð partý byrja á Þorparanum með Pálma Gunnars og félögum og svo fylgja á eftir fleiri lög í þeim dúr.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Ég er mikið að hlusta á þægilegt gítarpopp þessa dagana. James Bay, Ed Sheeran, Ásgeir Trausti, John Mayer, Jón Jónsson, Friðrik Dór, Mumford & Sons og fleiri eru líklegir að rata í Sonos hátalarann á sunnudagsmorgnum.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ed Sheeran í Róm væri alveg mjög spennandi ferð. Ég myndi að sjálfsögðu bjóða kærustunni með. 

Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Ég var mikið að hlusta á amerískt háskólarokk á þessum tíma í bland við íslenska tónlist. Ég átti alla diskana með Blink 182 og hlustaði mikið á þá. Einnig var oft blastað Sálinni Hans Jóns míns og Skítamóral.

Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Í raun ekki neinn einn listamaður sem hefur haft mestu áhrifin á mig. Ætli fjölbreytnin hafi ekki haft mest áhrif á mig.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Það eru tvær plötur sem koma upp í hugann og báðar ekkert svo gamlar. Fyrsta platan með Ásgeiri Trausta (íslenska útgáfan) finnst mér alveg frábær og einnig fyrsta platan með Of Monsters and Men. Þessar tvær plötur get ég hlustað á endalaust án þess að fá leið á þeim.

Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum?

Can´t Hold Us – Macklemore & Ryan Lewis (þetta er föstudagslagið mitt til að hefja helgarfríið)
Heimförin – Ásgeir Trausti
Sunny Day in June  – Jón Jónsson
Scars – James Bay
Love Love Love – Of Monsters and Men
Little Lion Man – Mumford & Sons

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir