Auglýst eftir skagfirskum dægurlögum

Flottir kappar á árum áður, Jóhann Friðriksson, Valgeir Kárason, Guðni Friðriksson, Hörður G. Ólafsson og Sveinn Ingason. Myndin fengin af fésbókarsíðu Skagfirðingafélagsins.
Flottir kappar á árum áður, Jóhann Friðriksson, Valgeir Kárason, Guðni Friðriksson, Hörður G. Ólafsson og Sveinn Ingason. Myndin fengin af fésbókarsíðu Skagfirðingafélagsins.

Skagfirðingafélagið í Reykjavík efnir til dægurlagasamkeppni í tilefni af stórafmæli þess en 80 ár eru liðin síðan það var stofnað 1937. Á heimasíðu félagsins er því haldið fram að félagið sé hið þriðja elsta sem starfandi er í dag af átthagafélögum á höfuðborgarsvæðinu.

Ætlunin er að gefa út afmælisdisk af þessu tilefni með tíu nýjum skagfirskum dægurlögum eftir skagfirska höfunda. Skilafrestur er til 15. maí og ber að skila lögunum á geisladiski og dulnefni höfunda skal fylgja með. Rétt nafn höfunda skal fylgja með í lokuðu umslagi. Sérstök fagdómnefnd mun svo verða ráðin í það að velja þessi tíu lög.

Að sögn Huldu Jónasdóttur, ritara Skagfirðingafélagsins, fá þeir höfundar, sem verða svo heppnir að eiga lög á þessum afmælisdiski, hver og einn styrk upp á 100.000 kr. frá Skagfirðingafélaginu til að klára lagið. Á afmælishátíðinni sjálfri, þann 7. október, munu svo lögin verða flutt og í kjölfarið gefinn út geisladiskur með vinningslögum tíu.  

Lögunum ber að skila á  geisladiski fyrir 15. maí á heimilisfangið:

Skagfirðingafélagið Reykjavík
Afmælislögin
Háulind 32
201 Kópavogur 

Fleiri fréttir