Aukasýning á Svartur á leik
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
10.04.2012
kl. 07.54
Íslenska kvikmyndin Svartur á leik hefur notið mikilla vinsælda og var til sýningar í Króksbíói í vikunni sem leið. Ákveðið hefur verið að vera með aukasýningu sunnudaginn 15. apríl kl. 20.
Miðapantanir fara fram í síma 4535216 og miðaverð er 1500 kr. Þess má geta að kvikmyndin er bönnuð innan 16 ára.
Fleiri fréttir
-
Uppskriftir að hætti Jóhanns Daða
Jóhann Daði er 24 ára Skagfirskur viðburðastjóri, fæddur og uppalinn á Sauðárkróki. Foreldrar hans eru Gísli Sigurðsson og Lydía Ósk Jónasdóttir. Jóhann býr fyrir sunnan, nánar tiltekið í Kópavogi, og vinnur sem sölumaður hjá Sýn. Jóhann spilar knattspyrnu með Tindastól og er trommuleikari í þeirri víðfrægu hljómsveit Danssveit Dósa.Meira -
Níu marka veisla á Sauðárkróksvelli
Það var leikið í 3. deildinni í knattspyrnu á Króknum í dag en þá tóku Stólarnir á móti liði Árbæjar í áttundu umferð. Liðin voru bæði um miðja deild en gestirnir þó ofan við miðlínuna en Stólarnir neðan hennar. Eftir nokkurt ströggl síðasta mánuðinn þá sýndu heimamenn sparihliðarnar og rúlluðu gestunum upp eins og gómsætri vöfflu með rjóma og rabarbarasultu. Lokatölur 7-2 og allt í gúddi.Meira -
Vel heppnuð vinnustofa um íþróttir fatlaðra
Í byrjun mánaðar héldu Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS), Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) sameiginlega vinnustofu um íþróttir fyrir fatlaða á Sauðárkróki. Vinnustofan var fyrir foreldra, forsjáraðila, íþróttaþjálfara, starfsfólk skóla og áhugafólk um íþróttir í sveitarfélaginu. „Vinnustofan var vel sótt og greinilegt að mikil þörf var á þessum viðburði. Miklar og góðar umræður sköpuðust um íþróttir fatlaðra í Skagafirði. Það verður gaman að vinna úr þeim punktum sem fram komu og koma þeim í farveg,“ segir Halldór Lárusson, svæðisfulltrúi íþróttahéraða á Norðurlandi vestra.Meira -
Þjóðhátíðardagsskráin á Norðurlandi vestra
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 14.06.2025 kl. 14.00 bladamadur@feykir.isÞjóðhátíðin 17 júní er á næsta leyti og af því tilefni ætlar Feykir að taka saman það helsta sem í boði verður á Norðvesturlandi.Meira -
„Ég er sveitavargur og hefur alltaf liðið vel að koma í Skagafjörðinn“
Blaðamaður Feykis hitti nýjan þjálfara meistaraflokks Tindastóls föstudaginn 7. júní þegar hann skrifaði undir tveggja ára samning. Blaðamaður settist niður með Arnari og spjallaði aðeins við kauða og tók stöðuna. Fyrst var kannski að fá að vita hver Arnar Guðjónsson er en hann er sveitastrákur úr Borgarfirði, sonur tveggja íþróttakennara, sem hefur alla tíð haft ótrúlega gaman af íþróttum og fólki og lá þá kannski beinast við að fara í þjálfun.Meira