Aukasýning hjá Steindóri

Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að halda eina aukasýningu hjá Leikfélagi Hofsóss á leikritinu Enginn með Steindóri og verður hún haldin á morgun síðasta vetrardag, kl 21:00. Sýningar hafa verið vel sóttar en um fjörugan farsa er hér að ræða.

Það ætti engum að leiðast það að sitja eina kvöldstund í Höfðaborg og láta skemmta sér með íslenskum gleðileik. Vel er hægt að mæla með því. Miðapantanir eru í síma: 893-0220.

Fleiri fréttir