Axel spilað frábærlega í janúar
Landsliðsmaðurinn Axel Kárason hefur spilað frábærlega með Værloese BBK í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta á nýju ári, samkvæmt frétt á Vísi.is. Axel er með 17,5 stig að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum ársins en skoraði 9,5 stig að meðaltali fyrir áramót, hann hefur því nánast tvöfaldað meðalskor sitt frá því fyrir jól.
Axel er með 20,5 framlagsstig að meðaltali í leik í janúarmánuði en auk stiganna 17,5 hefur hann tekið 6,8 fráköst og gefið 3,0 stoðsendingar að meðaltali í leik.„Værloese BBK er búið að vinna þrjá þessum fjórum leikjum ekki síst fyrir framlag íslenska framherjan,“ segir á Vísi.is.
Það sem þykir vekja þó mesta athygli er frábær nýting Axels í janúar en hann hefur nýtt 13 af 22 þriggja stiga skotum sínum í þessum fjórum janúarleikjum sem gerir 59 prósent nýtingu. Hann er líka að setja niður 3,3 þrista í þessum leikjum og hefur því ekki mátt fá opið skot fyrstu vikur nýja ársins.