Barokkhátíðin hófst í dag - dagskrá
Barokkhátíð Barokksmiðju Hólastiftis hófst á Hólum í Hjaltadal í dag og mun hún standa yfir um helgina, 21. – 24. júní 2012. „Já, það verður sko dansað og spilað á Barokkhátíðinni á Hólum en hátíðin er orðin árlegur viðburður á Hólum í Hjaltadal og er haldin þar í fjórða sinn,“ segir í grein Kristínar Höllu Bergsdóttur, einum skipuleggjanda hátíðarinnar, í nýjasta tölublaði Feykis sem kom út í dag.
Á dagskrá eru m.a. tónleikar, fræðsla, barokkmessa, dansnámskeið og söngnámskeið. Barokkhátíðinni er um leið ætlað að sameina menningu og arfleifð fornra tíma en einnig að sýna okkur hvernig þróun tónlistar og annarra lista hefur orðið frá tímum barokksins. Barokkhátíðin sameinar því m.a. þann hóp tónlistarfólks sem áhuga hefur á því að spila tónlist frá þessum tíma og öllum gefst kostur á að fræðast um tónlist og hljóðfæri frá þessum tíma.
„Á barokktímanum var mikið dansað og á hátíðinni gefst fólki tækifæri á að dusta rykið af dansskónum og læra barokkdans,“ segir Kristín Halla og bætir við að allt þetta er fólki að kostnaðarlausu en þátttakendur þurfa að greiða sjálfir fyrir uppihald. „Hérna er á ferð vegleg hátíð til heiðurs barokktímanum.“
Barokkhátíðin á Hólum er kjörið tækifæri fyrir alla þá sem vilja kynna sér betur barokktímabilið og tilvalið að fá sér bíltúr heim að Hólum og njóta þess sem hátíðin hefur uppá að bjóða. „Ekki er nauðsynlegt að vera alla dagana heldur er hægt að sækja einstakan viðburð, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum,“ segir Kristín Halla.
Nánar um hátíðina má finna á www.barokksmidjan.com eða hjá Kristínu Höllu guttikristin@simnet.is. Menningarráð Norðurlands vestra styrkir verkefnið.
Dagskrá Barokkhátíð Barokksmiðju Hólastiftis er svohljóðandi:
21. júní, fimmtudagur
10.00-12.00 Þátttakendur drífur að úr öllum áttum. Tækifæri til að hittast og skipuleggja starfið næstu daga.
12.00-12.30 Hádegisverður
12.30-13.15 Hádegistónleikar í Hóladómkirkju: Vilhjálmur Ingi Sigurðarson trompet og Eyþór Ingi Jónsson orgel.
13.30 og fram eftir degi: Söngnámskeið Jóns Þorsteinssonar (staðsetning óákveðin)
13.30 – 15.00 Dansnámskeið – umsjón: Ingibjörg Björnsdóttir í sal Hólaskóla
15.00-15.30 Síðdegishressing
15.30 – 16.30 Fyrirlestur í Auðunarstofu – umsjón: Vilhjálmur Ingi Sigurðarson
16.30-18.00 Æfingar
18.30 Kvöldverður
20.00 Tónleikar eða annar viðburður.
21.00 Gengið upp í Gvendarskál þar sem blásið verður í lúðra og jafnvel leikið á fleiri hljóðfæri. Ef ekki viðrar til göngunnar verður henni frestað þar til seint á föstudagskvöld.
22. júní, föstudagur
9.00 Morgunleikfimi í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur
9.30-12.00 Söngnámskeið Jóns Þorsteinssonar. Hljóðfæraleikurum gefst tækifæri til æfinga. Hvort tveggja, söngnámskeið og æfingar, er opið fyrir öllum sem vilja fylgjast með.
11.00-12.00 Dansnámskeið – Dansnámskeið Ingibjargar Björnsdóttur heldur áfram.
12.00-12.30 Hádegisverður
12.30-13.15 Hádegistónleikar – Umsjón: Eyþór Ingi Jónsson, Lára Sóley Jóhannsdóttir og Sigurður Halldórsson
13.30-15.00 Dansnámskeið – Ingibjörg Björnsdóttir kennir
14.00-15.00 Söngnámskeið Jóns heldur áfram.
15.00-15.30 Síðdegishressing
15.30-16.30 Tónleikar í umsjón Sigurðar Halldórssonar og Japps Schröders
16.45-18.00 Söngnámskeið Jóns heldur áfarm. Tími til ýmissa æfinga (hljómsveit, söngvarar, dansfólk)
18.30 Kvöldverður
20.00 Söngvaka í Auðunarstofu. Dreift verður söngverkum sem æfð verða á staðnum og söngfólk á hátíðinni, t.d. söngnemar Jóns Þorsteinssonar, getur komið fram að vild.
23. júní, laugardagur
9.00 Morgunleikfimi í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur
9.30-11.00 Dansnámskeið – Ingibjörg Björnsdóttir kennir
11.00-12.00 Æfingar
12.00-12.30 Hádegisverður
12.30-13.15 Hádegistónleikar í Auðunarstofu. Nemendur af námskeiði Hildigunnar Halldórsdóttur leika
13.30-14.30 Dansnámskeið. – Ingibjörg Björnsdóttir kennir
14.30-15.30 Erindi. Umsjón: Petri Arvo
15.30-16.00 Síðdegishressing
15.30-16.45 Hljómsveit hátíðarinnar æfir með dönsurum.
17.00-18.30 Tónleikar: Q Consort.
19.00 Barokkkvöldverður í sal Hólaskóla. Óskað er eftir að þátttakendur á hátíðinni troði upp með ýmis atriði, gamanmál, tónlist, leiklist, ræður eða annað skemmtilegt. Loks verður slegið upp barokkballi með undirleik hljómsveitar hátíðarinnar. Veislustjórar: Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson
24. júní, sunnudagur
11.00 Barokkmessa í Hóladómkirkju
12.30 Hádegisverður.
14.00 Lokatónleikar Barokkhátíðar 2012. Hljómsveit hátíðarinnar leikur og einnig koma fram smærri hópar og sólóistar.