Barrokksmiðja hlýtur styrk

Barokksmiðja Hólastiftis - Barokkhátíð á Hólum hlaut 250 þús.kr. styrk úr Samfélagssjóði Landsbankans í gær, 14. ágúst.

Alls voru veittir tuttugu styrkir; fimm að upphæð 1 milljón króna hver, fimm að fjárhæð 500 þúsund krónur og tíu að fjárhæð 250 þúsund krónur. Samkvæmt heimasíðu bankans bárust tæplega 500 umsóknir bárust um samfélagsstyrki að þessu sinni.

Samfélagsstyrkjum er ætlað að styðja við þá sem sinna t.d. mannúðar- og líknarmálum, menntamálum, rannsóknum og vísindum, verkefnum á sviðum menningar og lista, forvörnum- og æskulýðsstarfi og sértækri útgáfustarfsemi.

Nánar um styrkveitinguna má lesa á heimasíðu Landsbankans.

Fleiri fréttir