Beinar útsendingar og myndbandagerð á Héraðssýningu í Skagafirði

Ákveðið hefur verið að sýna yfirlitssýningu kynbótahrossa í Skagafirði í beinni útsendingu á veraldarvefnum.  Það er Hrossaræktarsamband Skagfirðinga sem mun standa fyrir þessu verkefni í samstarfi við Viggó Jónsson og Árna Gunnarsson. Hér er um ákveðið tilraunaverkefni að ræða.

Þannig ættu áhugasamir hrossaræktendur að geta fylgst með allri yfirlitssýningunni eða miðað við að vera við skjáinn á þeim tímum sem þau hross eru væntanleg í braut sem menn hafa áhuga á að sjá.

Þá verður einnig í boði að menn geta fengið upptökur af sýningum úr fordómnum.  Þessa þjónustu þarf að panta fyrirfram og er gjaldið 5.000 kr. á hestinn.  Kaupandi þjónustunnar mun þá fá afhentan disk með myndbandi af sínum hesti og verður trúlega hægt að afgreiða þetta á staðnum.  Áhugasamir geta pantað þetta um leið og þeir skrá hross til sýningar eða haft samband beint við Árna Gunnarsson (892-7707).

Skráning á sýninguna er í fullum gangi, en henni líkur á morgun, þriðjudaginn 22. maí.  Tekið er á móti skráningum í síma 455-7100 eða ee@bondi.is.

Héraðssýningin fer fram á Vindheimamelum í næstu viku og endar með yfirlitssýningu laugardaginn 2. júní.  Sköpulagsdómar fara fram í Hrímnishöllinni á Varmalæk.

Fleiri fréttir