Ben J. Everson til liðs við Breiðablik

Mbl.is segir frá því að Tindastólsmaðurinn og markamaskínan Ben J. Everson sé á leið til Breiðabliks. Blikar hafa átt í miklum vandræðum með að skora í sumar og aðeins gert níu mörk í ellefu leikjum í Pepsideildinni.

Samkvæmt frétt Mbl.is átti Everson í viðræðum við fleiri félög en hann hefur gert 7 mörk í 10 leikjum Tindastóls í sumar. Ben er hörkuduglegur, fylginn sér og ansi lunkinn og ljóst að Stólarnir munu lenda í vandræðum með að fylla skarðið sem hann skilur eftir sig.

Þá er fullyrt að kantmaðurinn knái, Theodore Furness, sé einnig á leið frá félaginu en samkvæmt heimildum mbl.is á Furness í viðræðum við ÍA og er líklegast að hann fari þangað eins og staðan er núna.

Fleiri fréttir