Besta bjórúrvalið á Micro bar

Micro bar var valinn staðurinn með besta bjórúrvalið í tímaritinu Reykjavík Grapevine sem gaf út tölublað þar sem upp var talið allt það besta sem Reykjavík hefur upp á að bjóða árið 2012.

Micro bar var opnaður af Skagfirska brugghúsinu Gæðingur Öl þann 1. júní sl. Þar fást 8 tegundir af bjór á krana, allar frá þessum 3 örbrugghúsum sem finnast í landinu; Gæðingi, Kalda og Ölvisholti. Einnig er mikið úrval sérbjóra á flöskum, sem sumar hverjar fást t.d. ekki í Vínbúðinni.

Í Reykjavík Grapevine má einnig lesa umfjöllun um Micro bar  þar sem rætt er við Stein Stefánsson barþjón Micro bar. Hér má sjá Reykjavik Grapevine, „The Best of Reykjavik 2012“.

 

 

Fleiri fréttir