Bíður eftir næsta keppnistímabili í fjallabruni :: Íþróttagarpurinn Anton Þorri Axelsson

Anton Þorri sáttur að lokinni reiðhjólakeppni í sumar. Aðsendar myndir.
Anton Þorri sáttur að lokinni reiðhjólakeppni í sumar. Aðsendar myndir.

Anton Þorri Axelsson er Íþróttagarpur Feykis að þessu sinni, 14 ára Króksari sem fær sína íþróttaútrás í fjallahjólreiðum í svokölluðu Downhill fjallabruni. Hann var einn af þeim sem útbjuggu í sumar leynilega hjólabraut í Skógarhlíðinni ofan Sauðárkróks og komst í fréttirnar fyrir vikið. Sú braut var alls ekki til einskins gerð því hún hjálpaði honum að æfa sig fyrir stórar keppnir í sumar og því til sönnunar lenti hann m.a. í 2. sæti á Íslandsmótinu í Skálafelli. Foreldrar Antons eru þau Axel Eyjólfsson, vélfræðingur, og Ósk Bjarnadóttir, kjötiðnaðarmaður.

Hvernig kom það til að þú byrjaðir að keppa í fjallahjólreiðum?
-Ég kynntist strák í útilegu í fyrra sumar sem var að keppa í fjallabruni. Eftir það keypti ég notað, fulldempað, hjól og var á því þangað til í vor en þá keypti ég nýtt hjól fyrir fermingarpeningana sem hentaði betur fyrir fjallabrun. Svo hitti ég þennan strák aftur í sumar en hann var að fara að keppa og ég ákvað að skrá mig í keppnina líka.

Hvernig og hvar hefur þú æft þig?
-Ég er skráður félagi í Hjólreiðafélagi Akureyrar og þar eru æfingar tvisvar í viku og ég hef reynt að mæta þar þegar ég get. Við gerðum líka „leynibraut“ í Skógarhlíðinni þar sem ég gat líka æft mig.

Hvað getur þú sagt mér um keppnir sumarsins, keppnisbúnaðinn, hjól og öryggishlífar?
-Hjólið heitir GT Force Elite og er með 160 mm fjöðrun að framan og aftan. Hjálmurinn er frá 100%, kjálkahjálmur sem er skylda í fjallabruni, einnig þarf að vera í brynju og með hnéhlífar í keppni.

Ég fór í bikarkeppni sem samanstendur af fjórum mótum og var það fyrsta haldið í Vífilstaðahlíð. Þar lenti ég í 5. sæti, sem var svosem allt í lagi miðað við fyrstu keppni. Næsta bikarmót var á Akureyri og þar lenti ég í 3. sæti og svo keppti ég á Íslandsmóti í Skálafelli og þar lenti ég 2. sæti. Þriðja mótið í bikarkeppninni var haldið í Úlfarsfelli og þar datt ég illa og eyðilagði hjálminn minn og fannst erfitt að keppa daginn eftir og lenti þar 6. sæti. Síðasta mótið var svo haldið á Akureyri um miðjan september og lenti ég í 3. sæti og þar með endaði ég bikarkeppnina í 3. sæti.

Íþróttafélag/félög: -Hjólreiðafélag Akureyrar.

Helstu íþróttaafrek: -Að lenda í 2. sæti á Íslandsmótinu í Skálafelli.

Skemmtilegasta augnablikið: -Veit ekki alveg en ætli það sé ekki þegar ég fattaði að ég hefði náð 2. sætinu í Skálafelli.

Neyðarlegasta atvikið: -Sennilega þegar ég flaug á hausinn eftir að ég var kominn í mark í seinni keppninni á Akureyri.

Einhver sérviska eða hjátrú? -Já ,ég keppi alltaf í bleiku Pringles brókinni minni (ég þvæ hana eftir keppni).

Uppáhalds íþróttamaður? -Sam Pilgrim, sem er enskur Freeride hjólari.

Ef þú mættir velja þér andstæðing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur? -Ætli það væri ekki pabbi sem ég vildi keppa við í Downhill.

Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? -Við höfum prófað það og pabbi flaug á hausinn.

Helsta afrek fyrir utan íþróttirnar? -Ég veit það ekki.

Lífsmottó: -Ætli það sé ekki bara að gera sitt besta.

Helsta fyrirmynd í lífinu: -Fabio Wibmer, sem er austurískur hjólari, og ástæðan er sú að hann er svo góður í öllum tegundum hjólreiða.

Hvað er verið að gera þessa dagana? -Bara að græja hjólið fyrir næsta sumar en það þarf að kaupa ýmislegt svosem gjarðir og fleira sem er ónýtt eftir sumarið.

Hvað er framundan? -Næsta keppnistímabil er næsta sumar þannig að það er bara verið að bíða eftir því.

Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? -Bara þakkir til þeirra sem hjálpuðu mér í sumar.

Áður birst í 41. tbl.  Feykis 2021

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir