Bílasýning á planinu við Skagfirðingabúð

Bifreiðaumboðið BL ehf. verður á Sauðárkróki með bílasýningu sunnudaginn 13. maí nk. frá kl. 15 – 17  á planinu við Skagfirðingabúð. Að sögn Hrafnhildar Hauksdóttur hjá BL ehf voru sýningar sem þessar árlegur viðburður hér áður fyrr en hafa legið niðri í nokkur ár.

„Nú gefst tækifæri til að skoða og reynsluaka nýjustu bílunum frá Subaru, Nissan, Renault, Land Rover og Hyundai.  Áherslan er á jepplingana, en þar hefur verið mikil gróska hjá framleiðendum,“ segir Hrafnhildur.

Þeir bílar sem verða til sýnis eru m.a. Nissan Qashqai sem nú er fáanlegur með nýrri 1,6 lítra dísilvél  og Hrafnhildur segir hafa fengið frábæra dóma bæði fyrir góða vinnslu sem og litla eyðslu.

„Sýndur verður einnig splunkunýr bíl frá Subaru, en Subaru hefur nú svarað samkeppnisaðilum með flottum jepplingi sem þeir kalla XV. Þetta er alveg nýr bíll sem byggður er á Imprezu.  

Ranault Megan Sport Tourer með 1.5 lítra dísilvél og sjálfskiptingu, sem fer hringinn í kringum landið á einum tanki. Hyundai ix35 er nú fáanlegur sem metan bifreið, en BL lét raðframleiða búnað sem settur er í hér á landi.

Einnig verður með í för Land Rover Discovery með 255 hestafla dísilvél sem, samkvæmt reynslu okkar, eyðir um 8 lítrum af olíu í langkeyrslu við íslenskar aðstæður.“

Umboðið verður með þjálfaða starfsmenn á staðnum sem meta og skoða notaða bíla og segir Hrafnhildur þeir geti gefið hugmynd um væntanlega milligjöf fyrir nýjum bíl ásamt því að veita allar upplýsingar um þá lánamöguleika sem í boði eru.

„Þeir sem koma og reynsluaka geta tekið þátt í happdrætti og unnið glæsilega humarveislu fyrir tvo á Humarhúsinu,“ segir hún í lokin.

Fleiri fréttir