Bjarki Árnason Íþróttamaður Skagafjarðar
Bjarki Már Árnason knattspyrnumaður úr Tindastóli var kjörinn Íþróttamaður Skagafjarðar í hófi sem UMSS og Sveitarfélagið Skagafjörður hélt í Frímúrarahúsinu í dag.
Í öðru sæti í kjörinu varð Mette Mannseth hestakona úr Hestamannafélaginu Léttfeta og í þriðja sæti lenti Ísak Einarsson körfuknattleiksmaður úr Tindastóli.
Ungu og efnilegu íþróttafólki úr öllum greinum innan UMSS voru veittar viðurkenningar fyrir frammistöðu sína í leik og starfi innan síns félags.
Fulltrúi íþrótta og tómstundaráðs Þórdís Friðbjörnsdóttir ávarpaði samkomuna og hét því að sveitarfélagið myndi áfram styðja myndarlega við íþóttalífið í Skagafirði eins og það hafi gert hingað til.
Það voru svo Þórdís Friðbjörnsdóttir og Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri sem afhentu íþróttafólkinu rósir og viðurkenningar.