Björgunarsveitin Grettir stórbætir bílakost sinn
Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi hefur eignast fullbúinn Ford F350 bíl. Að sögn Brynjars Helga Magnússonar formanns Grettis styrkir nýi bíllinn björgunarsveitina til muna og gerir henni mögulegt að taka þátt í vetrarverkefnum á hálendinu við verstu aðstæður.
Bíllinn er búinn 49" dekkjum og öllum tilheyrandi búnaði og var honum breytt af Jeppaþjónustunni Breyti í Reykjavík sem hefur mikla sérþekkingu á breytingum á þessari bíltegund.
Brynjar segir kaupin hafa verið að frumkvæði velunnara Grettis til nokkurra ára en Finnur Reyr Stefánsson í Bæ á Höfðaströnd afhenti björgunarsveitinni bílinn gegn 12 ára gömlum Land Rover sem Grettir átti. Segir Brynjar að bílaskiptin jafnist á við 7-8 milljón króna styrk til björgunarsveitarinnar og að þeir hjá Gretti séu afar þakklátir fyrir stuðninginn og hinn öfluga bíl.
Finnur kveðst ánægður með að geta stutt vel við þessa harðsnúnu björgunarsveit á Hofsósi. Minni björgunarsveitir í fámennum byggðarlögum hafi ekki sömu tækifæri til fjáröflunar og stóru sveitirnar á höfuðborgarsvæðinu.