Blóðbankabíllinn á ferðinni í dag og á morgun
Blóðbankabíllinn verður á Sauðárkróki við Skagfirðingabúð í dag og á morgun og heldur svo áfram ferð sinni á Blönduós sama dag en meðferðis er fríður hópur frá Blóðbankanum að safna blóði.
Hugsum fyrir komandi mánuðum og tryggjum að blóðbyrgðir landsins séu í lagi, segir í tilkynningu, og fyllum bankann að gæða blóði.
Blóðbankabíllinn verður á Sauðárkróki og Blönduósi eftirfarandi tímum:
Skagfirðingabúð Þriðjud. 11.sept. kl. 12:00-17:00
Skagfirðingabúð Miðvikud. 12.sept. kl. 09:00-11:30
N1 planinu Blönduósi 12. sept. kl. 14:00-17:00