Blóðsöfnun gengur vel

Blóðbíllinn við Skagfirðingabúð. Mynd: FE
Blóðbíllinn við Skagfirðingabúð. Mynd: FE

Blóðbankabíllinn er nú á ferð um landið og er þessa stundina staddur á planinu við Skagfirðingabúð. Þegar tíðindamaður Feykis.is kíkti við í bílnum um það leyti sem opnað var  í morgun var strax komin biðröð við bílinn. Konurnar sem starfa við blóðsöfnunina létu mjög vel af ferðum sínum, þær sögðu Skagafjörð vera með þeim svæðum á landinu sem safnast vanalega best en í gær fengu þær ríflega 50 blóðgjafa á Sauðárkróki en allt í allt komu um 70 manns til þeirra. Ekki fá allir að gefa blóð, í fyrstu heimsókn er tekið sýni til athugunar og ekki mega líða meira en fimm ár frá síðustu blóðgjöf án þess fara í athugun fyrst. 

Blóðbíllinn fer reglulega, í maí og september, í ferðir út á land og safnar blóði og er þetta mikilvægur þáttur í starfseminni. Auk þess er fariðreglulega á svæðin næst Reykjavík.

Bíllinn verður á Sauðárkróki til kl. 11:30 í dag og á Blönduósi, á planinu við N1, frá kl. 14:00 til 17:00.

 

Fleiri fréttir