Bókadagur á Króknum
Það verður ýmislegt í boði í dag fyrir bókaunnendur. Á kaffi Krók verður fagnaður vegna útgáfu Drangeyjarsögu Kristjáns Eiríkssonar en hann á einmitt afmæli í dag. Samkoma þessi hefst kl: 16. Það er Sæmundur bókaútgáfa sem gefur Drangeyjarsöguna út.
Í kvöld kl: 20 stendur svo Héraðsbókasafn Skagfirðinga svo fyrir rithöfundakvöldi.
Þar mæta: Benný Sif Ísleifsdóttir, Bjarni Harðarson, Gerður Kristný, Guðný Hallgrímsdóttir og Kristján Eiríksson og kynna þau og lesa upp úr nýjum bókum sínum.
Boðið verður upp á jólate og konfekt. Sem sagt, veisla fyrir bókaorma í dag. /hmj
