Börn skulu ekki leika sér í eða við snjóhengjur

Lögreglan á Sauðárkróki vill koma varnaðarorðum á framfæri til foreldra og barna vegna snjóhengja sem eru víða á Nafabrúnum. Hættulegt getur reynst að leika sér við þær því hætta er á að þær kaffæri hvern þann sem undir þeim kunna að verða.

Þá biður lögreglan húseigendur að huga að snjóhengjum sem kunna að slaga fram af húsum þeirra og geta valdið slysum eða tjóni ef þær falla. Menn skulu hafa varann á sér.

Fleiri fréttir