Bræðslan á Borgarfirði eystra fer fram í áttunda skiptið í sumar, helgina 26.-29. júlí

Í morgun var tilkynnt á facebook síðu Bræðsluhátíðarinnar á Borgarfirði eystra hvaða hljómsveitir myndu troða upp í ár. Hin skagfirska sveit Contalgen Funeral sem vakið hefur mikla athygli upp á síðkastið mun koma fram á hátíðinni í ár ásamt hinum geysivinsæla Mugison, Valgeiri Guðjónssyni og Fjallabræðrum.

Þeir sem geta ekki beðið eftir Bræðslunni þá má geta þess að hljómsveitin mun troða upp á tónleikum á Mælifelli annað kvöld kl. 22:00 og kostar 1000 kr. inn.

Sveitina skipa Andri Már Sigurðsson, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Gísli Þór Ólafsson, Sigfús Arnar Benediktsson, Kristján Vignir Steingrímsson og Bárður Smárason.

Hér er eitt lag frá þeim í Contalgen rétt til að hita upp fyrir helgina.

http://www.youtube.com/watch?v=shPQhG9bENk

Fleiri fréttir