Brautargengi í Skagafirði

Námskeiðið Brautargengi hefst í Skagafirði 1. febrúar næstkomandi.
Námskeiðið Brautargengi hefst í Skagafirði 1. febrúar næstkomandi.

Áformað er að halda námskeiðið Brautargengi í Skagafirði og mun það hefjast 1. febrúar. Um er að ræða námskeið fyrir konur sem vilja vinna að eigin viðskiptahugmynd í nýju eða starfandi fyrirtæki.

Helstu efnisþættir á námskeiðinu eru gerð viðskiptaáætlunar, stofnun fyrirtækis, stefnumótun, markaðsmál, fjármál og stjórnun. Upplýsingar og umsóknarform er að finna á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og er umsóknarfrestur til og með 30. janúar.

Fleiri fréttir