Brennum í Skagafirði frestað til morguns
Búið er að taka þá ákvörðun að fresta öllum áramótabrennum í Skagafirði fram til morguns. Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki þykir veðurútlitið ekki gott fyrir brennur né flugeldasýningar sem einnig færast til morgundagsins.
Fólk er hvatt til að fara varlega með flugelda í kvöld og taka ekki óþarfa áhættu ef veðrið býður ekki upp á annað en rok.
Veðurstofan spáir norðan 15-23 m/s og snjókoma, en 8-15 í kvöld og dálítil él. Frost 0 til 5 stig. Hæg norðlæg og síðar breytileg átt á morgun og léttir til. Frost 2 til 10 stig, mest í innsveitum.