Breyting á útsendingu hitaveitureikninga hjá Skagafjarðarveitum
Skagafjarðarveitur hafa ákveðið að hætta að senda út hitaveitureikningana á pappírsformi og einnig rafrænni birtingu í heimabanka. Í stað þess munu Skagafjarðarveitur birta alla hitaveitureikninga á „Mínum síðum“ sem eru aðgengilegar á heimasíðu Skagafjarðarveitna „skv.is“ og í íbúagátt Svf. Skagafjarðar á heimasíðunni „skagafjordur.is“ ásamt því að krafa stofnast í heimabanka.
Í tilkynningu frá Veitunum segir að þegar komið er inn á Skv.is er hnappur sem heitir MÍNAR SÍÐUR ORKA og í íbúagáttinni er hnappurinn MÍNAR SÍÐUR ORKA undir flipanum „GJÖLD“. Þegar smellt er á þessa hnappa kemst viðskiptavinurinn á Mínar síður þar sem reikningarnir eru vistaðir.
MÍNAR SÍÐUR ORKA eru nú þegar virkar og þar hægt að sjá hitaveitureikninga, hreyfingaryfirlit, viðskiptastöðu og notkun og þar er einnig hægt að skrá álestur.
Þeir viðskiptavinir sem eru 70 ára og eldri og hafa fengið reikninga senda til sín í pósti fá þá áfram senda heim til sín.
Sjáðu yfirlit yfir notkun á þínu heimili
Inn á MÍNUM SÍÐUM ORKA er auðvelt að fylgjast með notkun heimilisins með því að skrá álestur og mynda þannig álestrasögu. Bæði er hægt að senda inn eftirlitsálestur sem hefur ekki áhrif á áætlun, eða uppgjörsálestur og greiða þá fyrir raunnotkun t.d. mánaðarlega eða eftir ákveðnum tímabilum.
Það er mikið öryggi í því að fylgjast vel með notkuninni, til að koma í veg fyrir umfram eyðslu með tilheyrandi kostnaði.
Náttúran nýtur vafans
Með þessum breytingum eru Skagafjarðarveitur að nýta sér tækni nútímans til að spara pappír, sendingar- og birtingarkostnað, og auka þjónustu við viðskiptavini sína sem kaupa heitt vatn eftir mæli og munu nú geta fylgst betur með notkun sinni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.