Breytingar á vordagskrá Skagfirska kammerkórsins

Skagfirski kammerkórinn ætlar að sleppa eiginlegum vortónleikum þetta árið en þess í stað hefur verið tekin saman skemmtileg vordagskrá þar sem kórinn tekur lagið við hin ýmsu tilefni. Kórinn vakti athygli á því á heimasíðu sinni að vordagskráin þeirra hafi þó tekið smá breytingum.

Kórinn ætlar að taka lagið fyrir Oddfellow-félaga á morgun miðvikudaginn 25. apríl. Laugardaginn 28. apríl syngur kórinn við opnun Atvinnulífssýningar í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki og miðvikudaginn 2. maí við opnun Ljósmyndavefs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Héraðskjalasafns Skagfirðinga og Söguseturs íslenska hestsins í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir